Miðvikudagur, 12. mars 2008
Minnkun rafsegulsviðs þar sem við sofum og jarðbindingar
farinn að sofa!
Þriðjudagur, 4. mars 2008
Svar við skrifum Gests gunnarssonar um rafmengun frá 10 febrúar 2008
Ég hef beðið velvakanda að birta grein mína um svar við skrifum Gests Gunnarssonar og hér kemur hún eins og hún var birt og með henni opna ég hér með blogg-síðu mína og vona að fólk sjái sér fært að skrifa sýna upplifun um rafmengun.
Rafmengun!Ég hef ritað nokkrar greinar í morgunblaðið undanfarið ásamt Halli Hallssyni varðandi jarðbindingar, rafmengun og reglugerð um raforkuvirki. Ég las áhugaverða grein eftir Gest Gunnarsson tæknifræðing þ. 10.02.2008 og vissi þá að ég hefði séð einhversstaðar svar við þeirri spurningu sem hann varpaði fram í grein sinni og var svohljóðandi: Sólin sendir frá sér eindir (m.a. prótónur og nevtrónur), segulsvið jarðar fangar hluta þeirra einda sem hingað berast og verður hluti orku þeirra sýnileg sem norðurljós. Er mögulegt að flökkustraumar í byggingum fangi svona eindir og husanlega hættulegri eindir (geimgeislun) sem eru lengra að komnar? Geta svona eindir runnið eftir steypustyrktarjárni eins og ljós eftir ljósleiðara?
Eftir nokkra leit fann ég hvar ég hefði lesið svarið en það var í fyrirlestri Valdemars Gísla Valdemarssonar frá því í Norræna húsinu þann 29.04.1997 en þar kemur fram í seinni hluta fyrirlestrar hans svarið við spurningu Gests Gunnarssonar. Nú eru blikur á lofti um að þessar rannsóknir séu að taka óvænta stefnu. Denis Henshaw prófessor hjá Háskólanum í Bristol hefur sýnt fram á áður óþekkta eiginleika rafsviðs. Honum hefur tekist að sýna fram á að rafsvið hefur aðdráttarkraft sem veldur því að háspennulínur og rafmagnshlutir með hátt rafsvið soga til sín rykagnir, rakaagnir og örveirur. Þetta hefur gerbreytt myndinni sem unnið er eftir í rannsóknum á þætti háspennulína. Þessar rannsóknir Denis Henshaws hafa verið studdar með rannsóknum í háskólanum í Bergen í Noregi. Þar var sýnt fram á að efnamengun í jarðvegi væri meiri undir háspennulínum en fjær þeim. Þetta sýnir að í nágreni við háspennulínur er meiri mengun en annarsstaðar og erlendis þýðir það uppsöfnun á geislavirku radongasi, (sem hefur verið sýnt fram á) og hættulegum kemiskum efnum sem svífa um í lofti. Þetta gæti eftil vill útskýrt tíðni barnahvítblæðis þar sem áspennulínur eru og má þá segja að það eigi ekki við hér á landi. Ennfremur hefur Denis Henshaw og félagar sýnt fram á að bakteríur dragast að rafsviði. Hann hannaði sérstaka límborða sem safna sýnishorni úr loftinu og límdi á venjulegan hárblásara sem hafður var í sambandi inni í baðherbergi. Þessi tilraun var endurtekinn með hárblásariann ótengdan. Tíminn var jafnlangur og öll skilyrði þau sömu. Niðurstöður sýndu svo ekki var um villst að bakteríur voru mun fleiri í sýnishorninu sem tekið var með blásarann í sambandi en ekki. Þetta mætti hugsanlega heimfæra yfir á svefnherbergi með útvarpsvekjara á náttborðinu. Mikið rafsvið,- mikið af bakteríum? Jafnframt mætti velta því fyrir sér hvort þetta eigi ekki við ryksöfnun í heimilistækjum eins og t.d. sjónvörpum, útvörpum og hljómflutningstækjum. Rafsviðið sem myndast inni í þessum tækjum og kring um þau, soga til sín ryk og óhreinindi og að viðbættum fituögnum frá eldamennsku eða sígarettum gerir þessi tæki að eldsmat. Það kemur að því að neisti hleypur í rykinu og kveikir í.
Þetta er mjög gagnleg umræða og það sérstaklega í ljósi þess að fréttir hafa verið um að setja háspennulínur í jörðu. Aðilar hafa einungis verið að horfa til fagurfræðilegs þáttar í þessu samhengi en ekki til þess hvaða áhrif það hafi á jarðárur. Hvað með háspennulínur sem nú þegar liggja í jörðu allt í kringum okkur í borginni? Brynjólfur Snorrason frumkvöðull á Akureyri hefur verið að skoða þessi mál og ég veit að hann á til mikið af gögnum varðanid þessi atriði sem hann hefur verið að skoða bæði hérlendis og erlendis síðastliðin 20-30 ár. Það er áhugavert að sjá að háskólarnir eru að komast að sömu niðurstöðu og Brynjólfur Snorrason var fyrir all nokkrum árum. Er hugsanlegt að við getum komist lengra hér á Íslandi í þessum rannsóknum heldur en þeir í útlöndum! Ég er þess fullviss að ef við drögum saman góðan hóp ýmmissra vísinda- og áhugamanna úr ýmsum stéttum þjóðfélagsins getum við verið þessir útlendingar sem senda frá okkur niðurstöður sem vekja heimsathygli. Þessar umræður eru mjög gagnlegar og mikil þörf á að komast að einhverjum niðurstöðum með frekari rannsóknum. Fjöldi fólks er að kvarta um rafmengun í þeirra húsum en vísindin segja að það sé nú ekkert að marka fólkið því að það geti verið svo margt annað sem getur haft áhrif á vanlíðan annað en rafmagn. Þrátt fyrir þetta er fólk að fullyrða að það sofi miklu betur í sumarbústaðnum en á hemili sínu í borginni. Heimilin eru að upplifa: að perur endast óeðlilega stutt, lampabúnaður ofhitnar og skemmist, hiti í ramagnsstrengjum, hiti í rafmagnstöflum, blikk á dimmum og flökkt í flúrperum, rafeindabúnaður er að endast ílla, tölvur eru að bila óeðlilega mikið, rykhnoðrar myndast á 1-2 sólarhringum og svefnleysi. Er fólk að upplifa álíka hluti sem það getur sagt okkur frá?
Hefjum rannsóknir!
Svanbjörn Einarsson
Bsc. rafmangstæknifræði
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Svanbjörn Einarsson
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Rafdrifinn sportbíll sem heitir TESLA eins og fyrirtækið mitt! magnaður rafmagnsbíll sem kemst um 400km á hleðslunni
- Orkulausnir eru fyrirtæki Brynjólfs Snorrasonar frumköðuls frá Akureyri Brynjólfur hefur í fjölda ára bent á mikilvægi bættra jarðbindinga og að fagaðilar fari ekki að reglugerðum varðandi frágang jarbindinga og jarðskauta
- Samorka eru samtök orku- og veitufyrirtækja Einn megintilgangur Samorku er, sbr. heimasíðu, að:
- Neytendastofa - jarðskautsviðnám rekstrarskauts Tilgangur, mæliaðferð jarðskautsviðnáms og útreikningar
- Heimasíða Valdemars Gísla Valdemarssonar Mjög áhugaverð síða sem fjallar um rafsegulsvið og hugsanleg áhrif þess á heilsufar fólks, dýra og plantna. Tilgangurinn með þessari heimasíðu er að upplýsa áhugafólk um rannsóknir á hugsanlegum áhrifum rafgeislunar í hverskonar mynd.
- Are EMF (Rafsegulsvið) hazardus to Our Health?
- Powerball - kraftmikill bolti á stærð við tennisbolta Minnsta líkamsræktartækið á markaðinum!
- Rafmengun Hluti þess sem veldur rafmengun!
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar